logo

Forsíða Starfsfólk
Starfsfólk

Sigurður Þorri Gunnarsson:
Dagskrárstjórn - framleiðslustjórn - útsending
Siggi er annar þeirra sem að kom snjóboltanum af stað fyrir nokkrum árum síðan sem varð að Jólastjörnunni sem þú þekkir í dag. Siggi sér um ýmislegt á Jólastjörnunni allt frá daglegum rekstri til útsendingar. Hann er dagskrárstjóri stöðvarinnar sem þýðir að hann ber ábyrgð á hvað heyrist á Jólastjörnunni, hvort sem það er dagskrá eða tónlist. Hann er einnig rödd stöðvarinnar og sér um að hanna hljóðmynd hennar og auglýsingar. Hann hefur mikla reynslu úr fjölmiðlum þrátt fyrir ungan aldur og starfar í dag sem útvarpsmaður á VOICE 987 á Akureyri og stjórnar vikulegum spjallþætti á Sjónvarpsstöðinni N4 sem er sömuleiðis á Akureyri. Hann nemur einnig fjölmiðlafræði við Háskólan á Akureyri. Settu þig í samband í Sigga ef þú vilt koma lagi í spilun eða vinna hjá okkur á, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .


Magnús Kr. Þórsson:
Tæknistjórn - útsending
Maggi er hinn gaurinn á bakvið snjóboltann sem ætlar aldrei að stoppa. Hann Maggi er mikið tæknigúrú og hefur starfað sem tæknimaður og útvarpsmaður á ýmsum útvarpsstöðvum í tæp 20 ár. Hann sér um að stöðin gangi og að ekkert komi upp á. Án hans væri bara þögn! Maggi er einnig í útsendingu á Jólastjörnunni.

 

 


Gunnar Á. Ásgeirsson
Markaðstjórn - vefstjórn - útsending
Gunni sér um að afla okkur styrktaraðila og að auglýsingarnar heyrist þegar þær eiga að heyrast. Hann kemur einnig að auglýsingagerð, aukþess að vera í útsendingu. Gunni hefur verið viðloðandi útvarpið í einhvern tíma og hefur m.a. starfað sem útvarpsmaður á Flass 104.5. Hann sér einnig um að allir hlutir séu á réttum stað á vefnum okkar og að allt virki eins og það á að virka! Settu þig í samband við Gunnar ef þú vilt auglýsa eða koma einhverju á framfæri varðandi síðuna á, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Pétur Guðjónsson
Útsending - lestur
Það er mikill heiður fyrir okkur á Jólastjörnunni að telja Pétur Guðjónsson til starfsmanna okkar! Maðurinn er stofnun þegar kemur að útvarpi en hann hefur starfað við það með einum eða öðrum hætti í yfir 20 ár. Hann hóf ferilinn á Hljóðbylgjunni á Akureyri fyrir alltof löngu síðan og hefur svo starfað á fjölda stöðva, Frostrásin, Ljósvakinn (sem hann stofnaði sjálfur), dagskrárgerð fyrir Rás 1 og 2 og svo mætti lengi telja. Pétur æltar ylja hlustendum Jólastjörnunnar með frábærri jólamúsík og skemmtilegum kynningum um allt og ekkert á aðventunni. Pétur starfar sem meðferðarfulltrúi, er í dj þríeikinu N3 á Akureyri og stundar áhugaleik hjá Freyvangsleikhúsinu.


Gísli Björgvin Gíslason
Lestur - Ýmis verkefni
Gísli Björgvin er menntskælingur í húð og hár en býr einnig yfir gullbarka. Drengurinn knái les allskyns efni fyrir okkur, auglýsingar, sögur, leikþætti og fleira. Hann tekur einnig að sér ýmis tilfallandi verkefni fyrir stöðina. Gísli er nemi á Akureyri.

 

 




Valdís Eiríksdóttir
Lestur
Hún Vala er hæfileikarík stelpa! Hún syngur, leikur, dansar og hoppar og skoppar um létt í lundu, það er rosalega gaman að vera í kringum hana. Hún Vala "okkar" er kvennrödd stöðvarinnar og sér um lestur á stefum, auglýsingum, kynningarefni, sögum o.s.frv. Hún hefur einstaklega fallega og seyðandi rödd. Vala starfar í bakaríi og er einnig áhugaleikari.



Reynir Svavarsson

Forritari - tæknigúru
Reynir hefur áralanga reynslu úr útvarps og tækniheimum. Hann forritar ýmsa hluti fyrir okkur, sér um servera og annað tilfallandi. Hann er sá sem kann mest á tölvur norðan alpafjalla, allavegana segjum við það, hann er voðalega hófvær samt... Hann starfar við fjarskipti í Danmörku.


Ólína Kristín Jónsdóttir
Vefsíðan - lestur
Ólína er ekta húsmóðir og þess vegna mun hún sjá um uppskriftirnar á Jólastjörnunni hér á heimasíðunni og í útvarpinu! Hún mun einnig skrifa um ýmislegt á vefinn. Ólína les einnig fyrir okkur sögu, auglýsingar og fleira. Ólína er hjúkrunarfræðingur.


Stefán Marel
Vefnörd - forritun
Stefán er roslega klár þegar kemur að því að fikta í vefsíðum, græja og gera... Hann sér um að síðan virki eins og hún á að virka og tekur að sér ýmis smáverkefni hvað varðar forritun og annað. Stefán er nemi.


Sölvi Þór Hannesson
Vefsíðan
Hann Sölvi er sannkallað jólafrík, svona eins og flestir sem starfa á þessari stöð! Hann er sniðugur penni og ætlar að skrifa hér á síðuna okkar ýmsar greinar tengdar jólunum. Sölvi er nemi.


Hrannar Atli Hauksson
Vefsíðan
Hrannar er mikill kvikmyndamógúll og áhugamaður um kvikmyndir. Hann sér um að skrifa gagnrýni og umfjallanir um hinar ýmsu kvikmyndir og jafnvel eitthvað fleira, t.d. myndlist. Hann er skemmtilegur penni. Hrannar er í myndlistarnámi.


Ef þú vilt starfa með okkur á einhvern hátt - sendu okkur þá póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Auglýsingar

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Jólin eru eftir

Gleðileg jól frá starfsmönnum Jólastjörnunnar.