logo

Forsíða Uppskriftir
Uppskriftir
Þriðjudagur, 17. nóvember 2009 21:13

Það er frú Ólína sem sér um þennan hluta síðunnar, hún er frábær í eldhúsinu og er alveg með á hreinu hvað hún er að gera!

Endilega segið frá í gestabókinni eða sendið tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þið prófið uppskriftirnar, hvernig það gekk og hvernig smakkast :o) Verði ykkur að góðu!


16/12 ´09

Súkkulaðimús Nigellu - mjög fljótlegt.  Er dísætt en ógeðslega gott ;o)

150 gr mini marshmellows (litlir sykurpúðar)

50 gr ósalt smjör

250 gr súkkilaðidropar, dökkir, eða brytja niður súkkulaði.

4 msk nýlega soðið vatn (heitt)

- Bræðið þetta saman, það er í lagi þó að sykurpúðarnir bráðni ekki alveg, að það sé hvítt eftir.

1 peli rjómi

1 tsk vanilludropar

- þeytið rjómann með vanilludropunum

- Blandið rjómanum saman við hitt, setjið í ca. 4-6 skálar og rífið hvítt súkkulaði yfir til skrauts.


16/12 ´09

Tiramisu - ekkert í neinu svaka uppáhaldi hjá mér en ég þekki marga sem finnst þetta algert æði ;o)

2 eggjarauður

2 msk sykur

2 tsk vanillusykur

400 gr rjómasostur

2 msk koníak eða kaffilíkjör

4 msk sterkt svart kaffi

20 makkarónukökur

- Eggjarauður, vanillusykur og sykur sett í skál, þeytt þar til blandan er létt og freyðandi.

- 2 msk af rjómaosti sett út í blönduna og hrært kröftuglega með þeytara.

- Bæta afgangi af osti út í svo að úr verði mjúk þétt kvoða.

- Líkjör og kaffi blandan saman.  Makkarónukökunum dýft í kaffið í 2 sekúndur.  Kökur og ostablanda lagt til skiptis í skál.  Kælt.


7/12 ´09

Peruterta - þessi er rosa góð :o)

4 egg

135 gr sykur (1,5 dl)

60 gr hveiti  (1 dl)

35 gr kartöflumjöl  (0,5 dl)

- Eggin þeytt mjög vel, sykrinum bætt út í og þeytt vel saman.  Hveiti og kartöflumjöl sigtað saman og hrært saman við með gaffli.  Bakað í raspstráðu formi við 200°c fyrstu 5 mínúturnar og síðan 185°c.

Súkkulaðikrem:

50 gr súkkulaði

3 eggjarauður

4 msk flórsykur

1 peli þeyttur rjómi

1 heildós perur

- Súkkulaðið brætt og kælt, eggjarauður og flórsykur þeytt saman, súkkulaðinu blandað saman við, þeytt á meðan, síðast er þeyttum rjómanum blandað saman við.  Sett á milli botnana og ofan á.  Skreytt með perum.


7/12 ´09

Jarðarberjaterta - þessi botn er algert æði ;o)

4 eggjahvítur

100 gr súkkulaðispænir

1 bolli sykur

2 bollar kókosmjöl

1/2 tsk lyftiduft

1 msk hveiti

- Eggjahvítur og sykur þeytt vel saman, þurrefnin sett saman við.

- Bakað í 30 mínútur við 100 - 150°c.

- Kramin jarðarber (úr dós) sett út í þeyttan rjóma og sett á milli botnana (ekkert ofan á).


Karamellur - fín tilbreyting við smákökurnar :o)

1 bolli síróp

1 bolli sykur

1 bolli rjómi

1 tsk smjör

1/2 - 1 bolli saxaðar hnetur eða möndlur.

- Blandið öllu nema hnetunum saman í pott og sjóðið í 45 mínútur.  Hrærið stöðugt í.

- Þegar deigið er farið að þykkna er það prófað með því að láta dropa drjúpa í bolla með köldu vatni.  Þegar hægt er að móta deigið er hnetunum hellt saman við.

- Hellið deiginu á smurða plötu í 2 cm þykkt lag.  Skerið það í ferkantaða bita þegar það er hæfilega stíft.

- Vefjið karamellunum inn í sellófan þegar þær eru kaldar.


3/12 ´09

Hálfmánar - enn ein klassíkin, allt of langt síðan ég hef bakað þá sjálf!  Gott bæði með rabbarbarasultu og berjasultu.

500 gr hveiti

250 gr sykur

200 gr smjörlíki

1/2 tsk hjartasalt

1 tsk lyftiduft

1 egg

1 dl mjólk

kardimommudropar

- Hnoðið öllu saman.  Kælið.

- Fletjið út, mótið kringlóttar kökur, setjið eina teskeið af sultu á hverja þeirra.  Leggið kökurnar saman og þrýstið brúnunum saman með gafli. 

- Bakað ljósbrúnar.


1/12 ´09

Mömmukökur - alltaf jafn góðar.  Ég nota alltaf minnsta glasið mitt til að móta þær, þær mega líka vera stórar samt ;o)

125 gr smjörlíki

250 gr síróp

125 gr sykur

1 egg

500 gr hveiti

2 tsk natron

1 tsk engifer

- Hitið smjörlíki, sykur og síróp í potti og kælið síðan. 

- Hrærið eggið saman við.

-Blandið saman við hveiti, natron og engifer.

-Búið til hnoðað deig og látið bíða yfir nótt.

- Fletjið þunnt út og mótið kringlóttar kökur.

- Bakið við meðalhita (200°c)

- Leggið saman tvær og tvær með smjörkremi á milli.


 

30/11 ´09

Loftkökur - klassískar, einfaldar og alltaf góðar

750 gr flórsykur

2 msk kakó

1 tsk hjartasalt

2 egg

- Hnoðað, hakkað í lengjur og bakað í 20-30 mínútur við 150°c.


29/11 ´09

Piparkökur - mér var bent á að það vantaði piparköku uppskrift svo hér með bæti ég úr því, ég baka yfirleitt ekki piparkökur sjálf en þessi uppskrift er úr uppskriftasafni mömmu :)

250 gr smjörlíki

1,5 dl rjómi

1 msk kanell

250 gr sykur

3,5 dl síróp

1/2 msk pipar

1/2 msk engifer

500 gr hveiti  + ca 175 gr

1 lítið egg

hnífsoddur negull

1 sléttfull msk natron

- Rjóminn stífþeyttur.

- Sírópið hrært lint.  Þeytið eggið og bætið í ásamt sykri og kryddi.  Hrært vel saman áður en þeytta rjómanum er bætt út í.

- 500 gr af hveiti sigtað ásamt natroninu, smjörlíkið saxað og þrýst saman við hveitið.

- Síðan er allt hnoðað saman þar til deigið er jafnt og slétt.  Látið bíða til næsta dags.

- Þá er afgangnum af hveitinu (175 gr) hnoðað saman við deigið og það látið bíða á köldum stað um stund.

- Deigið flatt út og skorið út eins og hver vill.

- Kökurnar bakaðar við 165 - 200°c.

- Þegar þær eru kaldar má skreyta þær með allavega litri flórsykursbráð.


27/11 ´09

Vaniljukransar - þessir klassísku, nammi namm

500 gr hveiti

350 gr smjörlíki

1 egg

250 gr sykur

1/2 tsk hjartarsalt

2 tsk vanilja (vanillusykur)

- Hnoða allt saman, kæla.

- Nota hakkavélastjörnu og búa til lengjur sem síðan eru búnir til jafnstórir hringir úr.

-Baka ljósbrúna við meðalhita (200°c).


27/11 ´09

Bjössakökur - þessar eru rosa góðar fyrir þá sem fíla kókosmjöl :o)  Ég geri það sko ;o)

250 gr sykur

375 gr smjörlíki

300 gr hveiti

200 gr kókosmjöl

50 gr kartöflumjöl

2 egg

1 tsk lyftiduft

- Búið til hrært deig (með því að hræra vel saman sykur, smjörlíki og egg og bæta svo þurrefnunum út í), setjið það með skeið á plötu og bakið við 200°c í ca 8 mínútur.

- Gott er að dýfa helmingnum af hverri köku í bráðið súkkulaði og láta storkna.


24/11 '09

Pólsk jólaglögg ;o)

1 líter vodki

1 rúsína

- skreytt með greni


24/11 '09

ÍS - ómissandi á aðfangadagskvöld, fljótlegt, einfalt og ómótstæðilega gott! (Takk Unnur Helga fyrir að deila uppskriftinni með okkur :o))

8 eggjarauður (ef maður þarf ekki að nota hvíturnar þá má vel nota 5 egg í staðinn.  Ísinn verður ekki alveg eins mjúkur en sambærilegur).

80 gr flórsykur (um það bil 8 matskeiðar)

1/2 l rjómi

- Þeyta egg og flórsykur mjög vel saman.

- Þeyta rjómann, ekki stífþeyta hann alveg.

-Blanda rjóma og eggjablöndu varlega saman.

- Bæta út í ef vill:  Kjörís karamellusósu eftir smekk + súkkulaðispæni (jólaísinn) EÐA rífa niður 150 gr marsipan á grófu rifjárni ásamt 3 matskeiðum Grand Marnier líkjör (upphaflega uppskriftin) EÐA bara láta ímyndunaraflið ráða, hef prófað til dæmis með kókosbollum, rabbarbara...


23/11 '09

Sarah Bernhardt kökur (40 stk) - sörurnar alræmdu, ég er klaufsk að baka þær en eru þær ekki möst hjá mörgum??

100 gr malaðar möndlur

1,5 dl sykur

2 eggjahvítur

Krem:

125 gr suðusúkkulaði

0,5 dl sterkt kaffi

90 gr kalt smjör

suðusúkkulaði eða hjúpsúkkulaði

- Hitið ofninn í 200°c.  Blandið saman möndlum og sykri.  Þeytið eggjahvíturnar og blandið möndlusykrinum saman við.  Setjið með teskeið á plötu klædda bökunarpappír og bakið í 6-8 mínútur.  Gott að láta kólna á pappírnum.

- Bræðið súkkulaðið í kaffinu við vægan hita.  Setjið í hrærivélarskál og hrærið köldu smjörinu saman við, smátt og smátt í litlum bitum.  Hrærið þangað til kremið verður létt og glansandi.  Kælið.  Smyrjið eða sprautið kreminu á botn hverrar köku og látið bíða á köldum stað í 1 klukkustund.

- Bræðið súkkulaðið og penslið yfir.

 

 


 

20/11 ´09

 

Kornflexterta - þessi fékk ég fyrst eftir að bróðir minn kynntist mágkonu minni, hún er hluti af veisluhöldum æ síðan, takk Júlla fyrir að kynna okkur fyrir þessari frábæru köku :o)

1. Tveir botnar:

200 gr sykur (u.þ.b. 1 bolli)

2 eggjahvítur

2 stórir bollar kornflex

1 tsk lyftiduft

2. Fylling:

Þeyttur rjómi með súkkulaði bitum

3. Krem:

2 eggjarauður

1 tsk sykur

1 dl þeyttur rjómi

1 plata súkkulaði

Aðferð:

1. Stífþeyta eggjahvíturnar og sykurinn, hræra svo lyftidufti út í og síðan kornflexi.  Baka í 30 mínútur við 150°c í blástursofni.

2. Setjið rjóma með brytjuðu súkkulaði á milli botnana.

3. Sykur og eggjarauður þeytt vel saman, súkkulaði brætt og kælt, rjóminn settur út í og síðast súkkulaðið, hellið yfir toppinn á kökunni þannig að það leki aðeins niður hliðarnar en þær hyljist ekki.


19/11´09

Fengum þessa senda í gegnum póstinn okkar, mér líst vel á hana!!!  Nafn sendanda fylgdi ekki með en takk takk sgig ;o)

Kryddlegin hjörtu  (wiked in bed) :)

145 gr síróp nammi

150 gr sykur já.. já allt í lagi

150 gr smjör verður flughált

1 dl rjómi Hættu að tala um megrun

0,5 tsk negull toppurinn á kryddinu

0,5 tsk engifer góður með

0,5 tsk pipar farðu varlega

2 tsk kanill jólaskapið

1 tsk lyftiduft sama hvað maður bakar

400 gr hveiti verður að vera með

Bræddu síróp, sykur og smjör við vægan hita. Ekki ofgera þér, muna vægan.  Láttu rjúka.
Bættu út í rjóma, kryddi, lyftidufti og hveiti og hrærðu vel saman. Þegar krydda á tilveruna verður alltaf að vanda sig.
Hnoðaðu og búðu til jafna lengju. Það er auðvitað alfarið eftir smekk þínum hvað löng.
Geymdu í kæli í 8-10 klst.
Fletja þunnt út og mótaðu mismunandi kökur að vild. Hjartað er þó aðalmótið, ég meina þetta heitir einu sinni kryddlegin hjörtu.
Bakaðu þetta svo við 200°C í miðjum ofni í 7-8 mín. Og mundu að brenna þig ekki, já og ekki kökurnar heldur.
Góða skemmtun :)

 


 

18/11 ´09

Kremkex - þessar eru algert möst hjá mér, ásamt brúnu kossunum hér á eftir, smá handavinna en algerlega þess virði :o)

500 gr hveiti

250 gr sykur

190 gr smjörlíki

190 gr kókosmjöl

2 egg

1,5 dl mjólk

8 gr lyftiduft  (2 sléttfullar teskeiðar)

8 gr hjartasalt (2 sléttfullar teskeiðar)

1 tsk sítrónudropar

Þessu er öllu hnoðað saman í eitt deig.  Hakkað í gegnum lengjumót, skorið niður í jafnstórar kökur.  Bakaðar ljósbrúnar við góðan hita (220° eða 200° í blástursofni).  Látið kólna.  Lagðar saman 2 og 2 með brúnu smjörkremi á milli.

 


 

18/11 ´09

Brúnir kossar - ef maður vill vera hryllilega nákvæmur leggur maður málband við hliðina á lengjunum áður en maður sker ;o)

500 gr hveiti

250 gr smjörlíki

250 gr sykur

1 egg

3 msk mjólk

1 tsk hjartasalt

3 tsk lyftiduft

2 msk kakó

1 tsk kanel

1 tsk negull

Hnoðið allt saman.  Setjið í hakkavél og búið til lengjur sem síðan eru skornar niður í jafnstórar kökur.  Bakað við góðan hita (220° eða 200°í blástursofni)  Látið kólna.  Þær svo lagðar saman með hvítu smjörkremi á milli (án kakós) 


 

 18/11 ´09

Smjörkrem

smjörlíki

flórsykur

vanilludropar

kaffi (lagað)

egg

(kakó)

Öllu slumpað í skál og hrært saman.  Því lengur sem er hrært, því ljósara og léttara verður kremið.


17/11 ´09

Kókosterta - ótrúlega flott og nett... bara á einni hæð ;o)

4 eggjahvítur

200 gr. sykur (rúmir 2 dl)

200 gr. kókosmjöl (7 dl)

Krem:

4 eggjarauður

60 gr. flórsykur (rúmur 1 dl)

50 gr. smjörlíki

100 gr. suðusúkkulaði

Skreyting:

1 peli þeyttur rjómi

Eggjahvíturnar og sykurinn þeytt mjög vel saman.  Kókosmjölið hrært saman við.  Sett í 2 tertumót, vel smurð og bakað í 45 mínútur við 150°.

Eggjarauður og flórsykur þeytt mjög vel saman.  Smjörlíki og súkkulaði brætt og hrært út í kremið.

Látið volgt ofan á botnana í formunum.  Rjóminn þeyttur, skreytt!


17/11 ´09

Bóndakökur - bráðna upp í manni, algert æði, eldgömul uppskrift :o)

400 gr hveiti

100 gr kókosmjöl

250 gr sykur

250 gr smjörlíki

3 msk síróp

1 egg

2 tsk natron

1 tsk engifer

1 tsk negull

Þessu er öllu hnoðað saman og búnar til kúlur.  Þrýst ofan á þær með buffhamri sem dýft er í sykur á milli.

Bakið við góðan hita (200° í blástursofni)


17/11 ´09

Döðlutoppar - ómissandi í jólaundirbúningnum (kökubók Hagkaups) - þessi var send til okkar frá Danmörku, takk Unnur Helga :o)

 

100g smjör

40g sykur

40g púðursykur

1 stk egg

1/2 tsk matarsódi

160g hveiti

hn.odd salt

200g suðusúkkulaði

200g döðlur

1/2 tsk vanilludropar

 

Vinnið vel saman smjör og sykur þar til massinn er kominn vel samann. Setjið egg út í og látið blandast vel, saxið niður súkkulaði og döðlur [eina sem er virkilega tímafrekt og leiðinlegt en vel þess virði ;)] og blandið afganginum saman við, vinnið lítið saman en látið standa örlítið áður en sett er á plötu. Gerið litlar kúlur og raðið á plötu.

Bakið við 180° í 10-12 mín

[9 mín 150°C blástur á tveimur hæðum var fullkomið og gaf uþb 45 kökur]

 


 

 

Auglýsingar

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Jólin eru eftir

Gleðileg jól frá starfsmönnum Jólastjörnunnar.