|
Föstudagur, 20. nóvember 2009 09:14 |
|
Jæja góðir hálsar! Þá eru tilraunaútsendingarnar hafnar. Þú getur hlustað á okkur með því að smella á Hlusta í valmyndinni. Fyrst um sinn bjóðum við einungis upp á svokallaðan "mms" straum sem er fyrir Windows Media Player og er algengasta tegund kóðunar netútvarps. Hjá flestum notendum ætti straumurinn að opnast án vandræða. Fyrir makka notendur er hæg að hlusta á okkur með því að nota Windos Media Player for Mac eða Flip4Mac. Einnig geta allir sem eru með VLC player hlustað á stöðina en hann spilar "mms". Unnið verður að því að setja upp straum fyrir iTunes í Mac og Winamp í Windows síðar. Endilega látið okkur vita með því að fara í "hafa samband" ef þið getið ekki hlustað eða viljið koma einhverju á framfæri! Rétt er að geta þess að tónlist í þessu netútvarpi er send út með leyfi Stef og NCB. Við förum svo formlega í loftið sunnudaginn 22. nóvember kl 12:00!!
|