logo

Forsíða Kvikmyndir Jólastjarnan í bíó: A Christmas Carol
Jólastjarnan í bíó: A Christmas Carol
Fimmtudagur, 26. nóvember 2009 00:27

- Hrannar Atli Hauksson kvikmyndamógúll skellti sér ásamt starfsfólki Jólastjörnunnar í bió á dögunum.
Hin Klassíska Jólasaga Charles Dickens er hér kominn í enn einn búninginn, í þetta skiptið er það Jim Carrey sem gengur í hlutverk hins sífúla Ebenzer Scrooge, en Carrey leikur einnig anda liðinna, núverandi og verðandi jóla. Með honum í för er Gary Oldman sem Bob Cratchet og Jacob Marley. Aðrir meðal leikenda eru Robin Wright Penn og Bob Hoskins.

 

Sagan sem hefur verið aðlöguð á ótal miðla segir sem fyrr frá Ebenezer Scrooge, nánös með meiru sem hefur algjörlega gleymt meiningu jólanna og er leiðinlegur í fasi við alla sem hann hittir.
Eina Jólanóttina heimsækir hann draugur félaga hans heitins og segir að um nóttina muni þrír andar heimsækja hann til að minna hann á það sem var, sýna honum það sem er og vara hann við því sem mun verða.


Myndin, sem er tölvugerð með svokallaðri motion capture tækni, fer kvikmyndagerðamönnum vel úr hendi á því sviði og lítur allt mjög vel og ævintýralega út. Því miður fyrir myndina þá virðast aðstandendur mjög meðvitaðir um þetta og i myndinni eru allnokkur óþarflega löng flug skot sem þjóna engum tilgangi öðrum en þeim að sýna áhorfendum hversu flinkir teiknararnir eru.
Leikararnir standa sig allir með prýði og myndin er nokkuð skemmtileg, þetta er kannski ekki besta útgáfan af sögunni en þetta er virðingarverð tilraun sem heldur sig mjög nálægt upprunanlegu sögu Dickens.

*** = Þrjár stjörnur

PS. Svona persónulega verð ég að segja að mín eigin uppáhalds kvikmynda-útgáfa af sögunni er A Muppet Christmas Carol þar sem Michael Caine fer með aðalhlutverkið

Kvikmyndin er sýnd í Sambíóunum um allt land.

Smelltu hér fyrir sýningatíma.

-HAH

 

Auglýsingar

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Jólin eru eftir

Gleðileg jól frá starfsmönnum Jólastjörnunnar.