|
Kvimyndamógúllinn Hrannar heldur áfram að velta fyrir sér kvikmyndum í aðdraganda jóla, nú eru það óhefðbundnar jólamyndir... Jólamyndum má oft skipta niður í tvo ólíka flokka. Myndir sem fjalla um jólin og svo myndir sem gerast um jólin. Þær síðarnefndu eru ekki eins algengar og hinar og því eru þær myndir sem undir hana flokkast oft kærkomin tilbreyting frá hinum oft á tíðum klisjukenndu Jólamyndum. Hér ætla ég að kafa stuttlega ofan í tvær myndir sem falla í þennan skemmtilega hóp kvikmynda.
 -DIE HARD Já, Die Hard. Já, Myndin sem margir kalla hina fullkomnu hasarmynd er jólamynd í dulargervi. Ef maður skoðar aðeins myndina áttar maður sig á því að John McClane er bara maður sem vildi vera hjá fjölskyldu sinni um jólin. En nei, hryðjuverkamenn þurftu að gerast boðflennur í jólapartíinu og klúðra hátíðaráformum hins geðþekka McClane.
Þó að Die Hard sé vissulega mynd sem hægt er að horfa á á hvaða tíma ársins sem er kemst ég þó aldrei hjá því, hvort sem er í apríl eða annan í aðventu, að komast í vissan jólafíling undir lok myndarinnar, þegar McClane haltrar heim á leið með fjölskyldu sinni til að halda upp á jólin og Vaughn Monroe hefur upp raust sína með "Oh the weather outside is frightful, but the fire is so delightful..."
Die Hard; Blótsyrði, bardagar og jólafílingurinn upp á sitt besta.
 -KISS KISS BANG BANG
Þessa mynd þekkja mun færri, en Kiss Kiss Bang Bang er glæpamynd frá árinu 2005 með Robert Downey jr., Val Kilmer og Michelle Monaghan í aðalhlutverkum.
Þessi forláta mynd er ein af mínum uppáhaldskvikmyndum allra tíma. í Kiss Kiss Bang Bang fylgjumst við með smáþjófinum Harry Lockhart, en í upphafi myndar er hann búinn að brjótast inn í dótabúð til að stela jólagjöfum, upp kemst um athæfið og hann flýr af vettvangi en endar óvart í áheyrnarprufu fyrir kvikmynd. Framleiðendum líkar það sem hann gerir og senda hann til Los Angeles. Þar kynnist af einkaspæjaranum Perry van Shrike sem á að sýna Harry hvernig á að bera sig í spæjarabransanum svo hann geti sett sig betur inn í hlutverkið sem hann á að vera að sækjast eftir. Þeir félagar verða vitni að morði og þá vindur söguþráðurinn upp á sig allverulega og inn fléttast gömul vinkona Harrys.
Kiss Kiss Bang Bang gerist um jólin en það hefur voðalega lítið með söguna að gera, maður er þó minntur á það reglulega hér og þar í gegnum myndina hvaða árstíð er.
Eins og ég minntist á fyrr er Kiss Kiss Bang Bang ein af minum uppáhaldskvikmyndum og það er því að þakka að samtölin í myndinni eru alveg óborganlega fyndin, söguþráðurinn er skemmtilegur og Downey jr,, Kilmer og Monaghan eru öll í essinu sínu.
Þannig að ef þú ert komin/n með leið á öllu þvi kraðaki af hefðbundnu jólamyndum sem eru til á markaðnum þá mæli ég sterklega með þessum tveim, því það ættu allir að fíla Die Hard og þeir sem ég hef kynnt fyrir Kiss Kiss Bang Bang hafa ekki orðið fyrir vonbrigðum.
-Hrannar Atli Hauksson.
|