|
Til eru fjöldinn allur af frábærum jólamyndum. Kvikmyndamógúlar Jólastjörnunnar ætla að taka saman og skrifa greinar um nokkrar af allra bestu kvikmyndunum og birta hér. Ef þú átt í vandræðum með að velja myndirnar sem þú ætlar að horfa á yfir jólin ertu á réttum stað! Hinar ýmsu jólamyndir eru stór partur af jólunum hjá mörgum og byrja margir að horfa á myndirnar samhliða áhlustun á jólalög til að koma sér í jólaskapið.Ef þú hefur ábendingar um myndir sem skemmtilegt væri að fjalla um skaltu ekki hika við að hafa samband á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|
|
Föstudagur, 27. nóvember 2009 19:42 |
|
Kvimyndamógúllinn Hrannar heldur áfram að velta fyrir sér kvikmyndum í aðdraganda jóla, nú eru það óhefðbundnar jólamyndir... Jólamyndum má oft skipta niður í tvo ólíka flokka. Myndir sem fjalla um jólin og svo myndir sem gerast um jólin. Þær síðarnefndu eru ekki eins algengar og hinar og því eru þær myndir sem undir hana flokkast oft kærkomin tilbreyting frá hinum oft á tíðum klisjukenndu Jólamyndum. Hér ætla ég að kafa stuttlega ofan í tvær myndir sem falla í þennan skemmtilega hóp kvikmynda.
|
|
Nánar...
|
|
|
Fimmtudagur, 26. nóvember 2009 00:27 |
|
- Hrannar Atli Hauksson kvikmyndamógúll skellti sér ásamt starfsfólki Jólastjörnunnar í bió á dögunum. Hin Klassíska Jólasaga Charles Dickens er hér kominn í enn einn búninginn, í þetta skiptið er það Jim Carrey sem gengur í hlutverk hins sífúla Ebenzer Scrooge, en Carrey leikur einnig anda liðinna, núverandi og verðandi jóla. Með honum í för er Gary Oldman sem Bob Cratchet og Jacob Marley. Aðrir meðal leikenda eru Robin Wright Penn og Bob Hoskins.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|